Environice hefur aðstoðað fyrirtæki, samtök og sveitarfélög við útreikninga á kolefnisspori og önnur verk sem miða að því að ná yfirsýn yfir þá þætti í starfseminni sem stuðla að loftslagsbreytingum. Þetta hefur m.a. nýst fyrirtækjum sem undirritað hafa Loftslagsyfirlýsingu Festu og Reykjavíkurborgar. Hlutverk Environice í þessum verkefnum er einkum fólgið í:
- Söfnun upplýsinga um eldsneytisnotkun, aðra orkunotkun og meðhöndlun úrgangs
- Útreikningi á kolefnisspori á grundvelli framangreindra upplýsinga
- Skráningu upplýsinga í grænt bókhald
- Aðstoð við framsetningu og kynningu niðurstaðna
Dæmi um verkefni:
- Kolefnisspor eggja og kjúklinga
- Kolefnisspor höfuðborgarsvæðisins
- Kolefnisspor Vesturlands
- Kolefnisspor Suðurlands
- Kolefnisspor Norðurlands vestra
- Kolefnisspor laxeldis
- Kolefnisspor garðyrkjunnar
- Kolefnisspor Akureyrarkaupstaðar
- Kolefnisspor sauðfjárræktar
- Norðurorka: Stefnumótun
- Landsnet: Kolefnisspor, markmið og leiðir í loftslagsmálum
- Félagsbústaðir hf.: Grænt bókhald