Environice vinnur með Vestmannaeyjabæ að gerð svæðisáætlunar um meðhöndlun úrgangs í Vestmannaeyjum fyrir árin 2025-2036. Verkið hófst af fullum krafti í desember 2024 og lýkur væntanlega vorið 2025 með staðfestingu Bæjarstjórnar Vestmannaeyja á endanlegri áætlun.
Svæðisáætlun er lagaskylda skv. lögum um meðhöndlun úrgangs, nr. 55/2003. Sveitarstjórn, einni eða fleiri í sameiningu, ber skv. lögunum að semja og staðfesta svæðisáætlun em gildir fyrir viðkomandi svæði til tólf ára í senn og skal sú áætlun fylgja stefnu um meðhöndlun úrgangs og stefnu um úrgangsforvarnir.
Í svæðisáætlun eiga m.a. að koma fram upplýsingar um stöðu úrgangsmála á svæðinu, aðgerðir til að bæta endurnotkun, endurnýtingu og förgun og hvernig sveitarstjórn hyggst ná markmiðum stefnu um meðhöndlun úrgangs og stefnu um úrgangsforvarnir. Þetta felur m.a. í sér skoðun á þörf fyrir innviði fyrir meðhöndlun úrgangs á svæðinu. Að lokinni auglýsingu og kynningu áætlunarinnar skulu hlutaðeigandi sveitarstjórnir staðfesta hana og skal hún vera aðgengileg almenningi.
Tillaga að svæðisáætlun, ásamt umhverfismatsskýrslu í samræmi við III. kafla laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana, nr. 111/2021, verður væntanlega lögð fram í maí 2025 og gafst almenningi þá sex vikna frestur til að kynna sér tillöguna og koma athugasemdum sínum á framfæri.
Verkkaupi: Vestmannaeyjabær
Tímarammi: Verkið hófst 2024 og lýkur væntanlega með samþykkt Bæjarstjórnar Vestmannaeyja vorið 2025.
Útgáfa: