Í nóvember 2023 var gengið frá samningi milli Environice og Fjórðungssambands Vestfirðinga um gerð svæðisáætlunar um meðhöndlun úrgangs á Vestfjörðum. Verkefnið byggir á samþykkt Fjórðungsþings haustið 2022 þess efnis að öll níu sveitarfélögin í fjórðungnum hyggist vinna sameiginlega að áætlunargerðinni. Svæðisáætlun er lagaskylda skv. lögum um meðhöndlun úrgangs, nr. 55/2003. Sveitarstjórn, einni eða fleiri í sameiningu, ber skv. lögunum að semja og staðfesta svæðisáætlun em gildir fyrir viðkomandi svæði til tólf ára í senn og skal sú áætlun fylgja stefnu um meðhöndlun úrgangs og stefnu um úrgangsforvarnir.
Í svæðisáætlun eiga m.a. að koma fram upplýsingar um stöðu úrgangsmála á svæðinu, aðgerðir til að bæta endurnotkun, endurnýtingu og förgun og hvernig sveitarstjórn hyggst ná markmiðum stefnu um meðhöndlun úrgangs og stefnu um úrgangsforvarnir. Þetta felur m.a. í sér skoðun á þörf fyrir innviði fyrir meðhöndlun úrgangs á svæðinu. Að lokinni auglýsingu og kynningu áætlunarinnar skulu hlutaðeigandi sveitarstjórnir staðfesta hana og skal hún vera aðgengileg almenningi.
Verkið hófst af fullum krafti í desember 2023. Skipaður var vinnuhópur með fulltrúum allra sveitarfélaganna á svæðinu og var fyrsti fundur hópsins haldinn 13. desember. Hópurinn fundaði mánaðarlega á verktímanum, auk þess sem fulltrúar sveitarfélaganna hittust á sérstökum stefnumótunarfundi á Patreksfirði 15. apríl 2024. Vestfjarðastofa hafði umsjón með verkinu fyrir hönd sveitarfélaganna.
Svæðisáætlunarvinnunni lauk um miðjan október 2024 og í framhaldi af því var áætlunin send öllum sveitarstjórnum á Vestfjörðum til staðfestingar. Svæðisáætlunin öðlast gildi þegar allar sveitarstjórnirnar hafa samþykkt hana.
Verkkaupi: Fjórðungssamband Vestfirðinga
Tímarammi: Verkið hófst í desember 2023 og lauk í október 2024.
Útgáfa: Svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs á Vestfjörðum 2024-2035 (Lokaútgáfa til samþykktar 15. október 2024)