Tilgangur framkvæmdarinnar er að uppfylla þarfir markaðarins fyrir hagnýtt efni á Eyjafjarðarsvæðinu. Krossanesnáma við Akureyri verður fullnýtt innan skamms og því er þörf fyrir nýjan framtíðarefnistökustað. Framkvæmd sem þessi fellur undir 1. viðauka laga um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/2000. Þá er fjallað um nám jarðefna, vinnsluáætlun og frágang í lögum um náttúruvernd nr. 60/2013.
Hrafnhildur Tryggvadóttir hafði yfirumsjón með matsvinnunni f.h. Environice.
Viðskiptavinur: Skútaberg ehf.
Áætlaður tímarammi: Verkinu lauk með útgáfu endanlegrar matsskýrslu í júní 2013
Tengd útgáfa:
Álit Skipulagsstofnunar (3. júlí 2013)
Endanleg matsskýrsla (júní 2013)
Frummatsskýrsla (mars 2013)
Tillaga að matsáætlun (mars 2011)
Drög að tillögu um matsáætlun (janúar 2011)