Sveitarfélagið Hornafjörður vinnur að gerð svæðisáætlunar um meðhöndlun úrgangs í samræmi við 6. gr. laga um meðhöndlun úrgangs, nr. 55/2003, með síðari breytingum. Tillaga að svæðisáætlun, ásamt umhverfismatsskýrslu í samræmi við III. kafla laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana, nr. 111/2021, liggur nú fyrir og gefst almenningi sex vikna frestur til að kynna sér tillöguna og umhverfismatsskýrsluna og koma athugasemdum sínum á framfæri áður en áætlunin verður afgreidd af bæjarstjórn Hornafjarðar. Hægt er að kynna sér tillöguna á heimasíðu sveitarfélagsins og á vefsíðu Environice (sjá tengil hér að neðan), en Environice hefur aðstoðað við áætlunargerðina. Skriflegar ábendingar og athugasemdir skulu berast í síðasta lagi 28. mars 2025 á netfangið stefan@environice.is eða í pósti á heimilisfangið:

Umhverfisráðgjöf Íslands ehf.
v/ Svæðisáætlunar um meðhöndlun úrgangs í Sveitarfélaginu Hornafirði
Hvanneyrargötu 3
311 Hvanneyri

Svæðisáætlun Hornafjörður tillaga 250131