Í dag var undirritaður samningur á milli Environice og Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra (SSNV) um útreikning á kolefnisspori Norðurlands vestra í heild. Samkvæmt samningnum felst verkefnið í greiningu á helstu orsakavöldum kolefnislosunar í fjórðungnum, svo sem í samgöngum, landbúnaði, sjávarútvegi, iðnaði, neyslu íbúa o.fl. Að þeim niðurstöðum fengnum verða greindir möguleikar á annars vegar samdrætti í losun kolefnis og hins vegar á mótvægisaðgerðum sem mögulegt væri að grípa til í landshlutanum.
Verkefnið er áhersluverkefni Sóknaráætlunar landshluta fyrir árin 2018 og 2019. SSNV gerir sér vonir um að með verkefninu verði stigið mikilvægt fyrsta skref í átt að markvissri kolefnisjöfnun svæðisins sem með tímanum skapi tækifæri sem koma til með að styrkja byggð í landshlutanum.
Á meðfylgjandi mynd sjást Stefán Gíslason, eigandi og stofnandi Environice og Unnur Valborg Hilmarsdóttir, framkvæmdastjóri SSNV, undirrita samning um verkefnið á Byggðaráðstefnu Byggðastofnunar í Stykkishólmi 16. október 2018. (Ljósm. Hólmfríður Sveinsdóttir).