Faggildingarráð GSTC
Árin 2011-2013 átti Stefán Gíslason sæti í Faggildingarráði Alþjóðaráðsins um sjálfbæra ferðamamennsku (GSTC) (The Global Sustainable Tourism Council’s (GSTC’s) Accreditation Panel). Hlutverk faggildingarráðsins er að meta hvort staðlar fyrir sjálfbærnivottun fyrirtækja og áfangastaða uppfylli þær kröfur sem gerðar eru af GSTC. Staðall sem hlýtur þessa faggildingu getur kynnt sig sem GSTC-faggiltan staðal, sem gefur honum aukinn trúverðugleika…