Environice vinnur með B.M. Vallá ehf. að mati á umhverfisáhrifum efnistöku í landi Skorholts í Hvalfjarðarsveit. Áætluð efnistaka er um 2,5 milljónir rúmmetra og er framkvæmdin matsskyld samkvæmt lögum um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/2000, með vísan í tölulið 2.01 og 13.01 í 1. viðauka laganna.
Nú liggja fyrir drög að tillögu að matsáætlun vegna efnistökunnar og gefst almenningi kostur á að koma á framfæri athugasemdum við þau fram til 29. maí 2020. Eftir þann tíma verður tillaga að matsáætlun send Skipulagsstofnun til afgreiðslu, sbr. 17. gr. rgl. nr. 660/2015 um mat á umhverfisáhrifum.
Í drögum að tillögu að matsáætlun er fyrirhugaðri framkvæmd lýst, gerð grein fyrir helstu áhrifaþáttum hennar og tilgreint hverjir þeirra verði í brennidepli í matinu. Vonir standa til að drög að matsskýrslu liggi fyrir í sumar eða haust og mun almenningi einnig gefast kostur á að kynna sér þá skýrslu og gera athugasemdir við hana.
Allir geta kynnt sér tillögudrögin á vefsíðum B.M. Vallá ehf. (www.bmvalla.is) og hér á þessari síðu (sjá neðar). Skriflegar ábendingar og athugasemdir skulu berast í síðasta lagi 29. maí 2020 á netfangið stefan@environice.is eða í pósti á heimilisfangið:
Umhverfisráðgjöf Íslands ehf.
Bjarnarbraut 8
310 Borgarnes
Efnistaka í landi Skorholt í Hvalfjarðarsveit. Drög að tillögu að matsáætlun.
(Eindagi athugasemda er 29. maí 2020)