Í árslok 2016 tók Environice að sér að sjá um vöktun umhverfisþátta við urðunarstað Borgarbyggðar fyrir óvirkan úrgang við Bjarnhóla ofan við Borgarnes. Vöktunin er í samræmi við starfleyfi urðunarstaðarins, sem gefið var út af Umhverfisstofnun 16. apríl 2016. Tekin eru sýni á urðunarstaðnum og í nærliggjandi læk annað hvort ár og send til efnagreiningar. Environice sér um sýnatökuna, kemur sýnum til greiningar og tekur saman skýrslur um niðurstöðurnar, auk þess að vera Borgarbyggð til ráðgjafar um hvaðeina sem varðar umhverfisþætti í tengslum við rekstur urðunarstaðarins.
Viðskiptavinur: Borgarbyggð
Tímarammi: Sýnataka annað hvort ár og mælingar á stöðu grunnvatns tvisvar á ári (frá 2016).
Tengd útgáfa: Starfsleyfi og eftirlitsskýrslur