Verkefnið Mengun sjávar, gerð námsefnis fyrir annars vegar framhaldsskólanema og hins vegar fyrir nemendur á efsta stigi grunnskóla byrjaði sem hugmynd árið 2016 og varð að veruleika um 18 mánuðum síðar. Markmið verkefnisins er að búa til aðgengilegt og fræðandi kennsluefni fyrir skólakrakka, sem vonandi getur einnig nýst áhugasömu fólki á öllum aldri. Verkefnið er unnið af Birnu Sigrúnu Hallsdóttur, umhverfisverkfræðingi hjá Environice, en að verkefninu komu einnig Ævar Þór Benediktsson, leikari og rithöfundur, Sólveig Ólafsdóttir, sérfræðingur á umhverfissviði Hafrannsóknastofnunar, Sesselja Bjarnadóttir, sérfræðingur á skrifstofu vatns, hafs og loftslags hjá umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, Edda Karólína Ævarsdóttir, myndskreytari, og Sigurður B. Finnsson, eðlisfræðingur. Stefán Gíslason, umhverfisstjórnunarfræðingur hjá Environice, sá um yfirlestur. Þá aðstoðuðu Halldór Björnsson, haf- og veðurfræðingur, og Jón Ólafsson, haffræðingur, við að finna myndir. Verkefnið vr unnið með styrkjum frá Rannsóknasjóði síldarútvegsins og Þróunarsjóði námsgagna.
Námsefnið var tilbúið í öllum aðalatriðum í árslok 2017. Sumarið 2018 veitti Rannsóknasjóður síldarútvegsins framhaldsstyrk til að vinna sérstakan kafla um umhverfismál norðurslóða og sérefni fyrir Skipstjórnarskólann og Véltækniskólann. Því verkefni lauk í árslok 2019.
Viðskiptavinur: Styrkt af Rannsóknasjóði síldarútvegsins og Þróunarsjóði námsgagna
Tímarammi: Reynsluútgáfa tilbúin í ársbyrjun 2017. Verklok í árslok 2019.
Tengd útgáfa:
Mengun sjávar – Námsefni
Sjá umfjöllun í Sjávarútvegskálfi Morgunblaðsins 7. apríl 2016